Einu sönnu Súpermennirnir!
19.02.2008 20:39:32 / geiri

Ásgeir bloggar

Heil og sæl, 

Þið sem kíkið inná milli á þessa síðu í þeirri vona að sjá sögur af þeim hetjum sem við erum verðið væntanlega alltaf fyrir jafn miklum vonbrigðum. Sorry ....vonandi vaknar síðan bráðlega til lífsins!

Annars var ég að stofna blogg svona on my own svo endilega kíkið þangað og lesið ykkur til um þær lífsreglur sem ég kenni þar ;)

www.asgeirgudmunds.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 12:13:52 / olikari

Ónefnd færsla

Jæja... það er nú aldeilis kominn tími fyrir nýja færslu á kanntinn. Nú er kominn einn og hálfur mánuður síðan við komum til Köben eftir Eurotrippið ógurlega (www.blog.central.is/eurotrip2007). Bísullinn mætti síðan fyrir mánuði og er búinn að vera ónytjungur í þann tíma, sem og ég. Steini er byrjaður að vinna á bar á einnhverju royal hóteli hérna í miðbænum þar sem hann er að þéna sem aldrei fyrr og Eysi er að rokka Tiger þessa dagana. Raðar í hillur sem aldrei fyrr. En ánægður með þá drengi að vera byrjaðir að vinna.

Mmmm... það er nú hitt og þetta sem er búið að drífa okkar daga hér í köben. Tókum m.a. þátt í þeim brjáluðustu mótmælum sem ég hef nokkurntíman nokkurntíman komið nálægt. Það var verið að mótmæla Ungdomshusmálinu og því öllu og samtök sem kalla sig G13 stóðu fyrir göngunni. Planið var að taka nýtt ungdomshus þennan dag sem tókst, svona næstum því. Við eins saklausir og við erum, þá ákváðum við bara að skella okkur í gönguna og vorum með þeim fremstu, og þá svona líka fer allt úr böndunum og við eiddum öllum laugardeginum í að hlaupa undan táragasi og geðsjúkum löggum með kylfur á lofti. EN eins og ég segi, alveg ólýsanleg upplifun. Hérna eru nokkar myndir af deginum.

 

 

En í dag er föstudagur. Sit hérna heima, Steini og Eysi í vinnunni og Bísullinn steinsofandi. Það er menningarnótt í kvöld í köben þannig að það verður vonandi hresst. Íris Mist og Sólveig að koma í kvöld og svo Háfurinn á morgun:D Veiveivei... En já skólinn hans Pippa er með einnhverja dagskrá sem við ætlum alveg pottþett að tjékka á... því enginn annar en Púpan er að fara að syngja með kórnum og hver veit nema að drengurinn þurfi að taka einsöng. Það yrði saga til næsta bæjar.

En ætla að fara að vekja Bísulinn með blautum kossi... Peace

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 13:49:06 / geiri

Heimsborgarar

Já það er aldeilis ferðalagið á okkur súpermönnum þessa daganna!!!

Þeir sem hafi lesið eurotrip2007 bloggið hjá strákunum hafa fengið forsmekkinn á því sem koma skal hjá hópnum því ekki er allt búið enn. Mér fannst rétt að skrifa aðeins um hvað hver er að gera þessa daganna.........

Steini(skitan, mannfýla): Kallinn hefur verið á ferðalagi um evrópu síðastliðinn mánuð og ráðlegg ég því öllum að vera ekkert að ferðast þangað í svona 2-3 mánuði eða allaveganna þangað til lyktin er farin. Því þegar steini á í hlut er engum hlíft, hvorki mönnum, dýrum né borgum. Nú er hann kominn til kóngsins kaupinhavn og vinnur í því fram að jólum að saurga borgina en borgin sú er öllu vön vegna fyrri heimsókna Steins. Klakinn fær þess vegna frí fram að jólum frá ólátum Steins.. langþráð frí ;)

Eysi(perrlákur):Hefur eins og steini verið að ferðast um europa og hefur samkvæmt litlum fuglum verið duglegur að leggja varir sínar á allra þjóða kvikindi um allt meginlandið. Perrinn er nú kominn til köben en danskir fjölmiðlar birtu tilkynningu um komu rapparans taktfasta og sakvæmt reglum evrópusambandsins ríkir nú útgöngubann fyrir allar smá teprur fæddar á árunum 1990 til 2000 en eysi hefur ekki enn leitað í yngri en það. Kallinn verður í köben já allaveganna fram að jólum og er gaman að sjá ungu stelpurnar hér heima sem aftur loksins er komnar á kreik óttalausar ;)

Jónsi(babar, J-klam): Jón er eins og vitað er einn sjúkasti maður jarðar. Kallinn endaði sumarið með stíl nú í ágúst þegar mánudagsfyllerí endaði í Glasgow hjá honum Emma okkar. Hann hefur verið duglegar við yðju sína sem saurlífsmaður síðustu daga en hann gengur í skóla í ármúlanum þar sem stúdentspróf og kvót "klikkaðar gellur með hnífa" hrella drenginn. Mikil öfundsýki hefur haldið hann Jón okkar síðustu daga en ástin í lífin hans, Stephen Kassi, tók Þröst fram yfir hann. Óvitað er um ferðir jóns í haust en líklegast þykir að hann skelli sér til Glasgow og þaðan til köben í smá heimsókn. Lengi lifi Jón !

Pippi(púpan): Er einn aðalskipuleggjandi evrópu ferðar og hefur verið duglegur við að segja okkur hinum frábærar ævintýrasögur. Hann hélt sig bara heldur rólegann í ferð þeirri að mér skilst en það er samt oft þannig með púpuna að hlutirnir sem henda manninn er oft svo grófir og vandræðalegir að engum má segja frá ;) Mottóið hans pippa " ég rúnka mér ekki ég ríð " hefur þó væntalega þurft að víkja í þennan mánuð haha ;) Sögur fara af því að það fyrsta sem kallinn gerði þegar til köben kom var að panta kynlífshótelherbergi með rólum og fleiru og að Björg hafi verið sótt í skólann af hótelstarfsmönnum sem reyndu að koma henni í gírinn á leiðinni á hótelið....... en þetta eru bara sögusagnir ;)

Váflan (ólafur örn): Hefur sjaldan verið jafn rólegur og síðustu daga. Eins og alkunnugt er þá er Vofleman nefnilega hinn besti helgarpabbi og hefur ásjóna barnins heltekið drenginn en hann var beðinn um að skrifa party disk um daginn en fyrsta lagið var "bíum bíum bambaló" og restin ekkert skárri en annars hef ég ekki mikið vit á mainstream tónlistinni í dag svo kannski er þetta alveg eðlilegt. Mér líkar vel við váfluna svona smoothing. Annars er hann að vinna hörðum höndum hjá Eimskip við að laga allt sem Eysi gerði vitlaust og hver veit nema kallinn kíkji til köben í október eins og við hin.

Kári(bísúll): Hvarf í upphafi sumars til golfæfinga og vinnu en eftir mikla leit fannst drengurinn hjá vitanum útá nesi þar sem hann vann að grópun með kríum, hann fékk málið aftur eftir 3 daga. Uppá síðkastið hefur bísúll verið duglegur og án minnar vitundar kominn með dömu sér við hlið, enga aðra en Bentínu eða bentæn. Kári er á leið til kóngsins eins og svo margir, þar hefur hann hugsað sér að sækjast eftir stöðu formanns félags kastaníubrúnhærðra. Ganga þér vel kall haha :)

Óli Kári(gæsin): Hefur verið á rúntinum um Evrópu með strákunum eins og allir á Íslandi ef ekki allir í heiminum vita. Fréttir hafa borist reglulega hingað heim í gegnum fréttavef BBC af stráknum okkar. "Íslendingur gékk bersersgang í raftækjaverslun í litlum smábæ í S-Frakklandi" "Íslendingur ber fyrir sig að sparigæs hafi tekið yfir líkama sinn"  "Það var ekki ég sem pissaði á raftækin, það var sparigæs. Segir Íslendingurinn í S-Frakklandi" "Spurðu bara vini mína, ég er alltaf að gera þetta" þetta eru nokkrar af mörgum fyrirsögnum sem okkur hefur borist, vitað er að eitthvað þessu líkt hefur einnig gerst á allaveganna 5 stöðum víðsvegar um Evrópu. Nú er hann kominn til köben til að vera fram að jólum, ég hvet ykkur til að fylgjast með á mbl.is  visir.is  og öðrum fréttasíðum þar utan.

Elli(elecman): Elli, Elli, Elli hvar helduru þig elskudrengu? Lítið er vitað um Ellert vegna ákvörðun hans um að halda skólagöngu sinni áfram ótrauður og ekkert í hvað sem er heldur í Stærðfræði í HÍ já það er aldeilis. Kallinn útskrifaðist með promp og pragt frá MR og má búast við því að nemendur í HÍ fái að finna fyrir sleggjunni á komandi árum. Ég er eiginlega stoltastur af honum, sorry strákar, þið eruð allir ónytjungar nema já ég og elli hahahahaha ;) nobody beats elecman and bombmam!

Hlynur(clonie): Er í ruglinu og ónytjungast alla daga í sundlaugum bæjarins í leita af fersku kjöti. Hlynur var að koma heim frá Glasgow en þar var hann í heimsókn hjá Emma ásamt pétri sem málaði bæjinn brúnann en meira um það hér á eftir. Colonie hefur alltaf verið helvíti lúmskur og aldrei deilt neitt of miklu um sín einkamál enda væri það bara óhollt fyrir okkur hin að vita of mikið um hans venjur og stelpurnar sem hann geymir í búrum í garðabænum. Öllum spurningum um fyrirhugaðar aðgerðir hans er svarað svona "ég veit það ekki". Reyndar held ég heimsreisa hans og lúkers sé öll í vinnslu.

Lúlli(lúkerinn): Er orðinn meiri ónytjungur en McVillis!!! Heyrheyr kallin er eins og við vitum leikari að guðsnáð sem e-ð hefur verið að vinna í þeim málum samhliða vinnu hans sem garðyrkjuyfimannastjóriblómaogfrjókornadeildar hjá orkuveitunni í sumar. Svipað er með honum og colonie að því leita að vita mest lítið! Eitthvað hefur heyrst af vinnu hans hjá póstinum svo búast má við einhverjum töfum á póstinum þangað til, já þangað til að hann hættir. Lúkerinn fer síðan væntanlega í inntöku próf í leiklist í vor þar sem ég óska honum góðsgengis! Go lúker!GO

Haffi(háfurinn): Er alltaf jafn duglegur í Hraðbraut þar sem hann heldur góðum einkunum og hef ég heyrt að stelpurnar halda vart vatni yfir kallinum á góðum dögum. Margur hefði haldið að við þurrki mætti búast nú þegar vængmaðurinn og hægri höndin ÓK hvarf af landi brott en hver veit nema Óli hafi haldið aftur af kallinum öll þessi ár hahahaha ;) Haffi slúttaði sumrinu á svipaðan hátt og Jón þegar hann frelsaðist í Glasgow eftir að hafa vaknað þar á þriðjudegi eftir gott tjútt á mánudegi eftir Verslunnarmannahelgi. Haffi telst samt ekki vera jafn sjúkur og Jón. Vonandi verður Haffi duglegur að heimsækja okkur í Glasgow og Köben! ;)

Dabbi(McTryllisVillis): Hefur misst nafnbótina ónytjungur hópsins sem hann hefur haldið í föstum tökum síðustu ár. Tryllis heldur áfram skólagöngu sinni í hinum mikla Kvennaskóla og búist er við því að mikil dagdrykkja og sóðaskapur muni einkenna drenginn á næsta ári. Dabbi hefur eytt sumrinu að einhverju leiti á spítala en það getur hann sjálfum sér um kennt, meina það verandi kyssandi stelpur án skriflegs leyfis frá fyrrverandi, svona gerir maður ekki Mc. Vonandi sér maður svo Villis í útlandinu einhverntíman í vetur en mér finnst rétt að minna hann á að vera ekki svona ÖR.

Pétur Mar(puðmann): Heldur væntalega áfram sínu daglega rugli og röfli um afturgöngur og fuglaskoðanir. Pétur fór ásamt Colonie til Glasgow í lok ágúst þar sem hann bókstaflega málaði bæjinn brúnann og hef ég heyrt að bæjaryfirvöld þar utan hugi að því að reisa styttu af honum í miðbæ Glasgow. Talað hefur verið um að Steini þurfi að taka sig á ef hann vill halda í nafnbót sína. Annars er Pétur að vinna eins og brjálaður maður hjá Veislunni við mikinn fögnuð samstarfsaðila og kallinn var að fjárfesta í bíl nú nýverið sem ennþá er óskemmdur og held ég að  starfsmenn BSÍ geti verið rólegir í bili.

Þór(doddi rappari): Sama sagan að segja um hann og Ella, hvar helduru þig elskudrengur? Þór hefur ekki verið nægilega duglegur að stimpla sig inn en drengurin útskrifaðist frá MS í vor og var veislan hans með þeim flottari, takk takk! Síðast sást til þórs í eins manns mótmælum við nýja háskólasvæðið Keili á basinu, þar var hann nakinn, hlaupandi um öskrandi illyrði gegn feministum en sögur fara af því að ullarpíkurnar haldi sig þar og skipuleggi aðgerðinu "bleikt ísland"

Geiri(garkanX): Sjálfur er ég á leið til Glasgow núna á föstudaginn þar sem Emmi ætlar að hýsa bumbuna í nokkra mánuði. Þangað er ég aðallega að fara til að róa íbúa niður eftir helför okkar íslendinga þar í sumar en ég fór einmitt þangað um daginn, einnig hefur Celtic ákveðið að fá mig til liðs við sig í sóknina en ég skrifa væntalega undir samning þar eftir helgi.  Engar áhyggjur ég er ekkert að taka stöðuna hans Emma þar á bæ en hann verður væntalega þar mér til stuðnings. ;) Í sumar hef ég verið að vinna í Landsbankanum en hagnað fyrirtækisins má aðallega þakka mér! hahaha 

 

Annars er gaman að segja frá því að allir súpermenn hafa nóg að gera og verða næstu mánuðir ábyggilega áhugaverði hjá okkur flestum.... af öðrum en súpermönnum er lítið að frétta en líf þeirra verður væntanlega áfram jafn ömurlegt og það hefur verið hingað til, lifandi í falskri von um inngöngu í súpermennina pfffffff 

Kv. 

GarkanX HarkanSex  

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 21:24:59 / hlynur

Þjóðhátíð?

Jæja drengir..

Byrja á því að þakka öllum hróaskelduförum aftur fyrir góða ferð en það þýðir ekkert að slaka á núna... margir að fara út en ég heimta að allir sem verða á landinu skelli sér á Þjóðhátíð !

                                                  

 

 

 

 

Kallinn mætir að sjálfsögðu á svæðið!

Allaveganna kostar skitinn 10 þús kall í forsölu en báturinn fer að fyllast...

Koma svo fólk, fjölmennum !


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 11:26:53 / dabbi

Þá er það Skeldan, EKKI keldan!

nafngiftin er tileinkuð clonie clones sem heldur því ótrautt fram að skeldan heiti keldan bara af því að frænka hans er kjáni. Anywho þá ákvað jeg bara að setja smá færslu herna inn til að geta kommentað á smsið sem jeg var að fá. Doddi rappari var að spá í að taka myndavél með sér, eða einnota. Jeg var að spá í að vinna í því að skrifa einhverja roskilde diska, en þarf þá að vita hvort við séum með mp3 based gettó blaster, eða bara þenna venjulega sem tekur venjulega diska? svo er hittingur hjá okkur einhverjum á næstunni að kaupa tjöld og svoleis.. ERu allir að fara taka með sér stígvél og regnstakk???

 Við áttum vel heppnaða hróaskeldu(fund) síðasta laugardag þar sem mörg ný bönd komu uppá yfirborðið og tvöfaldaði það sem maður ætlaði að sjá og gerði valkvíðann meira áberandi en þetta blessast allt saman.

 

Lúlli ætlaðir þú að taka gítarinn þinn??

Doddi kemur þú með kameru?

Dabbi kemur þú með diska?? - vonandi

Bísúll kemur þú með??

Á einhver hjálm??

Hvenær er mæting á flugvöll og hver fer á bíl??

Er John McClane svalastur?? 


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 11:23:01 / pippi

Roskilde

Drengir drengir drengir ... þá er koið að því í kvöld leggjum við af stað í okkar árlegu ferð og í þetta skiptið er það Roskilde! Því miður koma ekki allir með an svona er lífið!

Allavega það er svo margt sem er ekki komið á hreint fyrir kvöldið svo endilega ræðum málin hér í commentum!

 

 

Kv. Pippi

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 16:43:38 / geiri

Útilega ?

Jæja drengs nú er mikið búið að tala um útilegu næsta föstudag og skiptar skoðanir um lendingarstað supermannanna.

 K.stelpurnar ætla flestar til Akureyrar á bílahátíð(veit ekki alveg) gæti samt verið gaman en meira vesen og já kostar fleiri aura ;( En síðan er nátla líka hægt að fara bara á Laugarvatn eða einhverstaðar nálægt Rvk og vera í eina nótt og taka á lífinu í bænum á laugardaginn(fuglar tala um party hjá dodda rappara).

Eitt er þó víst að gaman verður þar (hvar sem er).

commentið á hvert ykkur langar boyz and girlz


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 02:36:29 / hlynur

Check it

Jæja ákvað að skella inn smá checki á hvað drengir eru að gera þessa daganna til að lífga aðeins upp á þetta...

Váflan vinnur við það að rúnta um bæinn á einhverjum traktor, reykjandi og drekkandi í vinnuni alla daga eins og versti dólgur. Þess á milli er hann að sulla bjór út um allt aftursætið í bílnum mínum !!!

                      µrsh t¡Ð vinah¢psins 229.jpg

                            \

Það mætti halda að Pétur Mar væri að vinna í skóverksmiðju í Asíu því drengurinn er ávallt í vinnuni, hvort sem það er í veislunni eða á Prikinu. Hann hefur nú samt verið ágætlega duglegur við djammið undanfarið og er að láta vel sjá sig.

                      µrsh t¡Ð vinah¢psins 103.jpg

Lúlli vinnur hjá orkuveitunni og stendur sig eins og hetja.. Mætir alltaf á djammið og fer inn á milli í sleik.

Eysi var kjörinn tanaðasti maður útskriftarárgangs MR 2007 og segir "það er gott á fá loksins viðurkenningu fyrir alla þessa erfiðisvinnu en ég er rétt að byrja!"

Kári er kominn á fullt aftur í golfið og er samkvæmt golf.is í 83 sæti yfir bestu kylfinga landsins... ekki slæmt það. Hann stefnir á að feta í fótspor Tiger Woods sem var fyrsti blökkumaðurinn sem var megagóður í golfi, Kári ætlar að vera sá fyrsti rauðhærði.  

                               \ Árshátíð vinahópsins 125.jpg

Pippalingur var að byrja í nýrri vinnu í hinu húsinu í dag.. og fer hommatitturinn eftir 10 daga í launaða vinnuferð til Svíþjóðar. Þess á milli er hann sjúkur djöfull að taka myndir af öndunum í tjörninni eða hundum á ægissíðunni.

Haffi er að rúlla upp Hraðbraut, sem er reyndar ekki búinn fyrr en í lok júní.. Mikið að gera hjá drengnum en hann lætur sig mjög sjaldan vanta á djammið. Duglegur strákur.

Óli vinnur í Reykjadal í sumar og er farinn að sýna gamla og góða takta á djamminu þar sem hann lætur sig sjaldan vanta.

Steini Steini Steini... reyndar kominn með nýja konu upp á arminn en er samt alltaf fullur, alltaf. Vinnur hjá landsbankanum og hvet ég alla til að færa viðskipti sín eitthvað annað í guðanna bænum.

                    

              Er þetta maðurinn sem sér um fjármálin þín ?

                    

Jónsi fylgir Váflunni fast á eftir í bæjarvinnunni en fær þó ekki að keyra traktorinn enda á hann það til að sofna á ólíklegustu stöðum.

Geiri er líka að vinna hjá landsbankanum og bætir aðeins upp fyrir Steina þar á bæ. Mætir alltaf á djammið og endilega kyssið hringinn næst þegar þið sjáið hann.

Elli hélt snilldar stúdentsveislu á föstudaginn þar sem gítarstemmingin hjá súpermönnunum og fjöslkyldu hans gleymist seint.

Allt lítur út fyrir að Þór verði atvinnulaus ónytjungur í sumar en hann er engu að síður hörkuduglegur á djamminu og var t.d. að til hádegis á laugardaginn.

Dabbi kallinn er allur að koma til og verður örruglega ekki langt þangað til hann snýr aftur af hörku. Stráksi á allt gott skilið og hvet ég alla til að kasta á hann elskandi kveðju við tækifæri.

                        \

Sjálfur er ég bara í léttri leikjanámskeiðs vinnu og að telja niður daganna til Hróaskeldu!!! Já drengir það er bara innan við mánuður í kvikindið....

Sæl að sinni...

                    

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 14:47:13 / Thor

Roskilde og líkamshljóð ?

 

Núna er tími prófsins runnin í garð og öllu því rugli sem fylgir. Klukkutíma lúrinn og það að skreppa út í sjoppu og ná sér í snarl orðin eina afþreyingin sem maður er að leyfa sér þessa stundina, að undanskildu kærkominnar rautpásu hér og þar. Það kannast eflaust flestir við það að maður finnur sér ýmislegt að gera annað en að læra. Í rauninni er það alveg ótrúlegt hvað maður getur fundið sér bráðnausynlegt að skoða og spá í á netinu þegar maður leggur sig allann fram. Það er eimmitt það sem ég hef verið að gera núna seinustu 7 daga. Spá í hinum og þessum hlutum. Hvernig sumarið mun verða, hvaða atvik standa uppi úr menntaskólaárunum og hvernig þessi seinasti menntaskólavetur hefur litið út hjá mér.

Í gær hittust ég (með ekkert viðurnefni), Klóní og Dabbi á Players til að horfa á undanúrslit meistadeildarinnar. Meira vill ég ekki ræða um viðureign Manu. og AC Mílan en það að við vorum að reykja á meðan leiknum stóð.


Það sem ég er að reyna koma orði á er þetta reykingarbann sem mun taka gildi í júlí ef ég man rétt. Mér skilst að það á að banna allar reykingar inn á skemmtistöðum í sumar og er ég mikið að vellta fyrir mér þessari súru ákvörðun.
Þeir sem reykja alls ekki eru eflaust yfir sig ánægðir að geta komið heim úr bænum án þessarar reykingafílu sem einkennir það að fara út á lífíð. En ég, ásamt örugglega 80% af þeim sem sækja táwnið, sem get ekki ýmindað mér bjórinn jafn sætann án sígarettu finnst það frekar sköllað.

Í Noregi eru þessi lög þegar tekin í gildi á flestum stöðum og ég hef verið að spjalla við norska stelpu um þessi mál. Hún reykir ekki og segir reykingarfílan sé vissulega farin en í staðin er komin svitarlykt og ótrúlega skemmtilega blandaður hræirigrautur af ýmsum ilmvötnun og líkamslykt. Ég hef stundað böllinn í skólanum mínum (MS) í ár og hef ég allavega í þrem eftiminnilegum tilvikum einum eða öðrum tímapunkti fundið allveg ótrúlega prump lykt.

hef ég eflaust prumpað allsvaðalega á djamminu. Vöðvarnir slakast allir við drykkju og maður getur ekki annað en látið gossa. Ég sé fyrir mér að skemmtistaðirnir munu ilma af svita, endaþarms og líkamslykt. Skemmtistaðirnir munu eflaust úða klósett sítrónulyktareyðum í þeirri von um að kæfa þessa ógeðslegu líkamsfílu og útkoman mun verða sítrónu klósett lyktandi mannfíla. Ég tala nú ekki um þessa eitugufur sem koma úr þessu sítrónu sprey sem munu óbreint valda heimsku, heilablóðfalli með tilheyrandi krabbameini í kaupæti.

Ég get rétt ýmindað mér hve oft mér verður hent út af skemmtistöðum fyrir það að kveikja mér í einni rettu inn á klósettinu, vera svo þefaður uppi af mislukkuðum dyraverði sem hefur núna einnig í sínum að verkahring að ekki bara henda út drykkfeldum dólgum næturlífsins heldur einnig siðprúðum gullfallegum strákum og stelpum sem erum það eitt sek að kveikja sér í.

Ég tel ekkert annað hægt að gera en að við sameinumst öll gegn bláu höndinni og þessari forræðisstefnu ríkissins og berjum gegn hvíta manninum með því að byrja öll að kveikja okkur í á næturlífinu og sýna að það verður ekki traðkað á litla manninum



Einnig vill ég hvetja alla til að kaupa sér miða á Roskildefestival. Hópur Súpermanna er að sjálfsögðu að fara. Við erum að tala um Jónsa, Hlyn, Pippa, Dabba, Kára, Lúlla, Váfluna og mig (þór). Við erum að tala um hljómsveitir eins og Beastie Boys, The Killers, The Who, Muse, My Chemical Romance, Queens of the Stone Age, Micha !!, Red Hot Chillie Peppers, Talib Qweli og fullt fullt af fleirum böndum eru að fara spila svo þetta verður TRYLLT!

 hróaskelda í fyrra 

Doddi Out

 


» 31 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 11:06:04 / pippi

Kvennaskólinn að kveldi kominn!

Jæja nú sitjum við Óli, Lúlli, G-mjólkin og ég hér í jarðfræði hjá kærleiksbrunninum Geir á síðasta skóladaginn í okkar kæra Kvennó. Eftir 4 ára veru innan veggja skólans er þessu nú senn að ljúka. Hvort það er gott eða vont veit meður ekki ...! Ég man gömlu dagana í 1-NB þegar ég, Óli, Lúlli, Geiri, Haffi, Dabbi, Hlynur, Steini, Gunni Geir, Siggi litli og fleiri góðir menn vorum allir saman í bekk. Nú eru það bara fjórir síðustu móhíkanarnir sem standa eftir að undantöldum Kára og Hlyn. Það vita nú allir hvernig fór fyrir Skituni, Dabbi, Gunni og Siggi féllu og Haffi hætti þó drengurinn sé nú að slá í gegn í Hraðbraut. Ég vildi bara nota tækifærið og minnast þessara góðu tíma ;)

 Svo ég fær mig í hressari kantinn þá er dimmition hjá okkur á morgun sem byrjar kl. 10:30 niðrí Kvennó og svo tekur bara fillerí við á austurvelli svi það verða allir að tékka á bönönunum á Auturvelli, en þannig er mál með vexti að við drengirnir verðum fokking bananar á dimmition í slakasta juden búning sem flaug á hvorki meira né minna en 7.900 kall en samt sem áður eru flestir aðrir búningarnir dýrari! Hvað er í gangi!

 Eftir helgi taka svo prófin við og setan í Skjaldbakus fer að telja í tugum klukkustunda svo ég ítreka að helgin er síðasta djamm fyrir próf svo það er um að gera að taka á því, allavega verða flestir af okkur í góðu glensi á föstudaginn, það er nokkuð ljóst.

 Ég ætla ekki að vera að lengja þetta blogg neitt meir.

 Friður úti - Peppsvepp

                                            

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:05:20 / dabbi

Sumarið að koma og því verður fagnað í kvöld!

já það má segja að vesturbæjargleðin sé í hámarki eftir glæstan titil í körfunni og því verður víst fagnað aftur í kvöld! ÞAð er víst teiti hjá Junkman í kvöld og held jeg að flestir súpermannanna láti sjá sig þar. Leikurinn gegn Njarðvík í körfunni á mánudaginn var eitt það rosalegasta sem menn hafa séð í gegnum tíðina og voru íþróttaheftir menn á borð við Peppsvepp mættir og voru svitaholur hans, og annara sem voru í stemmingunni að starfa á hámarksgetu. Nóg um það, eftir leikinn fór liðið og stuðningsmenn þess á ólíver og svo á vínbarinn og var gleðin alveg til 5 að morgni en þá er ekki sagt að það sé komið nóg, því liðið og margir áhangendur munu láta sjá sig á Prikinu í kvöld og mun verða sungið og fagnað eins og aldrei fyrr.. svo ef þú ert ekki KR-ingur og hatar falskt fólk þá ekki koma þangað í kvöld!:D Súpermenn sameinast í kvöld enn á ný og vona að sem flestir stimpli sig inn á djammið.

 

stemmingin var í hámarki eins og glöggir lesendur sjá!
 
rosalegur stimmung í herbúðum Kr-inga 
 
 
 
 tjekkið á Ella stökk-Babar!
 
 
vonast til að sjá sem flesta á skrallinu í kvöld!
 
kv. McTryllisVillis 

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 12:03:52 / olikari

Kengúra

Hvað er að gerast?

 

Þessi síða er að

 

 verða súrari en

 

 þetta

Nema að við tökum

 höndum saman!

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 03:29:51 / olikari

Mjá

Jæja... þá er helgin búin, og PÁSKAFRÍIÐ að taka við. Það er svo fokking vænt að ég get ekki líst ánægju minni sem greip mig í "gærmorgun" þegar ég var að skríða fram úr rúminu og hugsaði hvað ég meikaði ekki að fara í skólann á morgun (s.s. í dag, á mánudegi, þó það sé kominn þriðjudagur). EN neihei þá rann upp fyrir mér þetta yndislelga páskafrí. Kræst þetta er flókið maður!

 Páskareif var haldið á laugardaginn og ég held að ég má segja að þetta reif hafi verið slakast af þeim öllum. Samt drullugott partý;) Reifið mætti einnhvernveginn of miklum afgangi.  Tjarnartríóið tróð upp en tæknimennirnir sem voru að setja upp græjurnar unnu sitt verk ekki nógu vel og kom það niður á Tjarnartríóinu. Djosúa dótturhljómsveit Tjarnartríósins hitaði upp og stóðu þeir sig með sóma. Alltaf gaman að vera svona einskonar stökkbretti fyrir minni hljómsveitir sem eru að þreifa sig áfram í tónlistarbransanum. En já þetta var ágætisgigg samt sem áður.

Það þarf ekki að kynna þessa

 

Lárus trommari Djosúa horfir aðdáunaraugum í átt að Tríóinu. Kannski að "ég trúi ekki að ég sé að spila með Tjarnartríóinu" sé að fljúga í gegn um huga hans?

Mér leiðist alveg big time. Einnhverjir eru á Stykkishólmi í illu chilli og flestir aðrir eru bara heima hjá sér súrir. Já kannski bara nákvæmlega eins og ég8| ...mmm... allavegana þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra:*

Peace


» 13 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 20:01:47 / Haffi

Úje!

Jæja börn og burur. Þá er stundin sem við höfum öll beðið eftir runnin upp. Dagsetning á stóru stundina, Reif Party 3. 

Vil biðjast afsökunar á litlum fyrirvara en morgundagurinn hefur verið negldur niður.

Á MORGUN! 

Vil ég biðja fólk og aðra fjendur um að taka viðeigandi klæðnað með sér (Hlýraboli) og einnig nóg af áfengi. 

 

Dagskráin er svohljóðandi:

  • 21:00 - Fólk fari að týnast inn.
  • 22:30 - Fólk ætti svona flest að vera mætt og mestu ógæfumennirnir byrjaðir að æla á stofugólfið hjá Clonie
  • 00:30 - DJ Voofle mun trylla lýðinn með fyrsta sessioni kvöldsins.
  • 01:00 - 01:30 - Óvænt uppákoma. Heyrst hefur að meðlimir T3(tjarnartríóið döö!) séu allir komnir á beinu brautina og losnaðir úr prísund eiturlyfjanna. Munu þeir halda uppá það með pompi og prakt. Að þeim loknum mun reifið halda áfram.
  • 03:00 - Fólk gerir upp við sig hvað gera skal í framhaldi af kvöldinu enda er nóttin enn ung. Bærinn/heim að læra/lukkupottirinn.

Jæja börnin góð þá er þetta komið á hreint. Þeir sem halda að þeir séu boðnir eru alveg örugglega boðnir. Annars verða dreifðir boðsmiðar á atburðinn á kæjanum í kvöld. Ef þið eruð ekki viss hringið bara í Mannböðulinn og biðjið um Þráinn í síma 8659181.

 

Reif'on party ppl! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Leitarbox