Einu sönnu Súpermennirnir!
05.06.2007 02:36:29 / hlynur

Check it

Jæja ákvað að skella inn smá checki á hvað drengir eru að gera þessa daganna til að lífga aðeins upp á þetta...

Váflan vinnur við það að rúnta um bæinn á einhverjum traktor, reykjandi og drekkandi í vinnuni alla daga eins og versti dólgur. Þess á milli er hann að sulla bjór út um allt aftursætið í bílnum mínum !!!

                      µrsh t¡Ð vinah¢psins 229.jpg

                            \

Það mætti halda að Pétur Mar væri að vinna í skóverksmiðju í Asíu því drengurinn er ávallt í vinnuni, hvort sem það er í veislunni eða á Prikinu. Hann hefur nú samt verið ágætlega duglegur við djammið undanfarið og er að láta vel sjá sig.

                      µrsh t¡Ð vinah¢psins 103.jpg

Lúlli vinnur hjá orkuveitunni og stendur sig eins og hetja.. Mætir alltaf á djammið og fer inn á milli í sleik.

Eysi var kjörinn tanaðasti maður útskriftarárgangs MR 2007 og segir "það er gott á fá loksins viðurkenningu fyrir alla þessa erfiðisvinnu en ég er rétt að byrja!"

Kári er kominn á fullt aftur í golfið og er samkvæmt golf.is í 83 sæti yfir bestu kylfinga landsins... ekki slæmt það. Hann stefnir á að feta í fótspor Tiger Woods sem var fyrsti blökkumaðurinn sem var megagóður í golfi, Kári ætlar að vera sá fyrsti rauðhærði.  

                               \ Árshátíð vinahópsins 125.jpg

Pippalingur var að byrja í nýrri vinnu í hinu húsinu í dag.. og fer hommatitturinn eftir 10 daga í launaða vinnuferð til Svíþjóðar. Þess á milli er hann sjúkur djöfull að taka myndir af öndunum í tjörninni eða hundum á ægissíðunni.

Haffi er að rúlla upp Hraðbraut, sem er reyndar ekki búinn fyrr en í lok júní.. Mikið að gera hjá drengnum en hann lætur sig mjög sjaldan vanta á djammið. Duglegur strákur.

Óli vinnur í Reykjadal í sumar og er farinn að sýna gamla og góða takta á djamminu þar sem hann lætur sig sjaldan vanta.

Steini Steini Steini... reyndar kominn með nýja konu upp á arminn en er samt alltaf fullur, alltaf. Vinnur hjá landsbankanum og hvet ég alla til að færa viðskipti sín eitthvað annað í guðanna bænum.

                    

              Er þetta maðurinn sem sér um fjármálin þín ?

                    

Jónsi fylgir Váflunni fast á eftir í bæjarvinnunni en fær þó ekki að keyra traktorinn enda á hann það til að sofna á ólíklegustu stöðum.

Geiri er líka að vinna hjá landsbankanum og bætir aðeins upp fyrir Steina þar á bæ. Mætir alltaf á djammið og endilega kyssið hringinn næst þegar þið sjáið hann.

Elli hélt snilldar stúdentsveislu á föstudaginn þar sem gítarstemmingin hjá súpermönnunum og fjöslkyldu hans gleymist seint.

Allt lítur út fyrir að Þór verði atvinnulaus ónytjungur í sumar en hann er engu að síður hörkuduglegur á djamminu og var t.d. að til hádegis á laugardaginn.

Dabbi kallinn er allur að koma til og verður örruglega ekki langt þangað til hann snýr aftur af hörku. Stráksi á allt gott skilið og hvet ég alla til að kasta á hann elskandi kveðju við tækifæri.

                        \

Sjálfur er ég bara í léttri leikjanámskeiðs vinnu og að telja niður daganna til Hróaskeldu!!! Já drengir það er bara innan við mánuður í kvikindið....

Sæl að sinni...

                    

 

ell skrifaði
Já ég mætti einmitt niðrí landsbanka í gær og viti menn þar var Steini fullur að afgreiða kúnna.. spurning hvað hann kemst upp með þetta lengi ? Ég skýt á viku í viðbót
Haffi skrifaði
Orðið á götunni segir að hann fái þetta bara því að hann er að sofa hjá útibússtjóranum. Sem heitir btw Bárður Njálsson.
Dabbi skrifaði
hann er pottþétt að drekka núna, þott að hann sé sofandi..:)
dagny skrifaði
hae elskurnar... sakna ykkar sjuklega mikid! Hedan er samt allt gott ad fretta og mega stud, vildi ad tid vaerud herna :/ kritarkvedjur og kossar :*
geiri skrifaði
þar sem ég er nú að vinna á sama stað og niðurgangurinn þá get ég staðfest það að hann er grínlaust nánast alltaf fullur í vinnunni........ og má geta þess að hann vaknaði BLINDUR á föstudaginn síðasta af þynku ....já blindur, hann sá ekkert Djúpt sokkinn!!!
irismist skrifaði
úff, ég er að meta þessa mynd hlynur
Óli Kári skrifaði
Heyh baby girls. Verðum eitthvað að fá að sjá ykkur þegar þið komið til baka. Og Íris, heyri í þér á morgun. Tókst ekki í kvöld;) En heyr heyr með púpuna... Þokkalega sjúkasti djöfullinn norðan Siglufjarðar!
steini skrifaði
eg vill bar árétta þann misskilning að ég sé einhverskonar óreglu og stórdrykkjumaður. það vill svo til að ég er einmitt mjög ábyrgðarfullur og traustur einstaklingur og hef ekki bragðað vott alla vikuna:)
Lína skrifaði
djöfull verður GAMAN á Hróaskelduuuuuuu ;)
garkan skrifaði
vikan er ekki liðinn Steinn og stórefa ég að bindindið haldist alla vikuna......... Eina ástæða þess að þú hefur ekkert blotnað í vikunni er dagdrykkju bannið sem Guðný setti þér !!!!!!
Óli Kári skrifaði
Hvaða bann er þaÐ?
Pippi skrifaði
Saelir elskur drengir minur ... tala her fra Stokkholmi i godum gir, hlakka til ad sja ykkur drengina og taka adeins a tessu um helgina:) .. en allavega .. gaman ad lesa commentid fra steina i ljosi tess ad tad er buid ad reka kallinn :P .... shit happens

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Leitarbox