Ég undirritaður samþykki hér með alla skilmála Súpermanna um hvernig djamminu verður háttað.
Spurningar
Hvað get ég gert til að gera djammið betra?
Geturðu lánað mönnum öl ef svo verður?
Býður þú upp á húsnæði í kvöld?
Átt þú edrú vin í kvöld sem getur skutlað?
Þekkir þú Innri-Mágann?
Ertu með jull???
Skilmálar
Súpermenn áskilja sér réttinn til að breyta öllum skilmálum á hvaða stigi máls sem er. Öll gæludýr og fylgihlutir þeirra eru bannaðir meðan á vakt stendur. Utanaðkomandi aðilar eru ekki leyfðir innan húsnæðis Súpermanna á meðan vakt stendur nema að Umsókn um djammvakt hafi verið fyllt út og samþykkt eða að viðkomandi hafi rosalega virðingu (eða óeðlilega stórt jull). Viðkomandi skal gefa sig allan í drykkju, óskunda og óheilsu. Eiturlyf eru með öllu bönnuð nema erlendis (ef viðkomandi er fundinn uppvís að eiturlyfjaneyslu er viðkomandi rekinn burt með gaffal í rassgatinu). Súpermenn áskilja sér rétt til að reka fólk út á hvaða stundu sem er að ástæðulausu. Fólk með yfirgang og almenn dólgslæti er með öllu bannað nema að frumkvæði vaktstjóra. Drykkjuleikir skulu vera samþykktir með meirahluta atkvæða. Óviðkomandi drykkjuleikir skulu útskýrðir að fullu og svo spilaðir með samþykki vaktstjóra. Eftirfarandi umræðuefni er með öllu bönnuð á meðan drykkju stendur: Launamál stunðningsfulltrúa, Eiður Smári, Réttindi nemenda og próf!
Ég (undirritun) samþykki hér með alla skilmála og sækist hér með eftir djammvakt í kvöld (dagsetning)
Takk Fyrir og ég viðurkenni að Súpermenn eru The Shit!
Copy/paste-aðu nú þessu öllu í komment fyrir neðan vaktaplanið sykursnúðurinn minn 